Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 7. október 2026
Hér kemur fram hvaða persónuupplýsingum Vefsmið safnar á vefsmid.com, til hvers þær eru notaðar og hvaða réttindi þú hefur. Við söfnum eins litlu og hægt er.
Hver ber ábyrgð?
Vefsmið ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram í gegnum þessa síðu. Þú getur haft samband vegna persónuverndar á netfangið vefsmid0@gmail.com.
Hvaða upplýsingum er safnað?
Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum formið á síðunni fáum við:
- nafn þitt,
- netfang þitt,
- hvaða pakka þú valdir og hvort þú vilt viðhald,
- skilaboðin sem þú skrifar.
Ef þú sendir okkur tölvupóst beint fáum við netfangið þitt og það sem þú skrifar. Vinsamlegast sendu ekki viðkvæmar upplýsingar, t.d. um heilsu, í skilaboðum.
Þegar síðan er opnuð skráir hýsingaraðilinn Netlify tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu og tegund vafra, til að reka síðuna og verja hana gegn misnotkun. Vefsmið notar þær upplýsingar ekki til að greina eða fylgjast með gestum.
Til hvers eru upplýsingarnar notaðar?
Eingöngu til að svara fyrirspurninni þinni, útbúa tilboð og eiga við þig samskipti um verkefnið. Ef af viðskiptum verður notum við þær líka til að veita þjónustuna og gefa út reikninga. Við sendum þér ekki markaðspóst nema þú biðjir um það.
Á hvaða grundvelli?
Vinnslan er nauðsynleg til að gera ráðstafanir að beiðni þinni áður en samningur er gerður og til að efna samning, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679, sem gildir hér á landi samkvæmt lögum nr. 90/2018. Bókhaldsgögn eru varðveitt vegna lagaskyldu.
Hverjir fá upplýsingarnar?
Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Eftirfarandi þjónustuaðilar vinna þær fyrir okkur:
- FormSubmit (formsubmit.co) tekur við því sem sent er í gegnum formið og áframsendir það í tölvupósti til Vefsmiðs. Áður en sendingin fer í gegn getur FormSubmit beðið þig að staðfesta að þú sért ekki vélmenni.
- Google (Gmail) geymir tölvupóst Vefsmiðs.
- Netlify hýsir vefsíðuna.
Þessir aðilar geta unnið upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins, t.d. í Bandaríkjunum. Upplýsingar eru ekki afhentar öðrum nema lög krefjist þess.
Hversu lengi eru upplýsingarnar geymdar?
Fyrirspurnum sem leiða ekki til viðskipta er eytt innan 12 mánaða. Upplýsingar um viðskiptavini eru geymdar á meðan viðskiptin standa yfir og bókhaldsgögn í 7 ár, eins og lög um bókhald krefjast.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka eða andmæla vinnslu og fá þær afhentar á tölvutæku formi. Sendu beiðni á vefsmid0@gmail.com og við svörum innan mánaðar.
Ef þér finnst brotið á rétti þínum getur þú sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
Vafrakökur
Síðan notar engar vafrakökur. Nánar á síðunni Vafrakökur.
Breytingar
Ef stefnan breytist birtum við nýja útgáfu hér með nýrri dagsetningu.